Það hefur verið kalt í húsum í Kórahverfi síðustu daga. Ástæðan er skortur á vatni til upphitunar. Íbúi segir í samtali við Morgunblaðið að slíkt sé algeng ef hitastig fer undir mínus fimm gráður. Þá hefur staðan versnað síðustu mánuði.
Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins deilir frétt Morgunblaðsins á Facebook og segir það gerast ítrekað að þegar kólni komi upp vandamál í hitaveitumálum á höfuðborgarsvæðinu.
„Auðvitað er þetta ekki sambærilegt við það óþolandi ástand sem margir á landsbyggðinni hafa þurft að búa við síðustu daga, en það breytir ekki alvarleika málsins,“ segir Jón og bætir við:
„Þær aðstæður sem sköpuðust þegar einn dagur með sæmilegu frosti kom hlýtur að leiða hugann að því hvernig aðstæður verði ef hér kæmi alvöru kuldakast. Ég hef óskað eftir því við bæjaryfirvöld í Kópavogi að framkvæmd verði óháð úttekt að stöðu þessara mála.“