Þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins skilur ekkert í heftu klám­aðgengi

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skilur ekkert í heftu aðgengi að klámi fyrir börn.

Berglind Ósk tjáir sig um málið á Twitter-reikningi sínum en nýlega var greint frá því að stjórnvöld væru með áform um að hefta verulega aðgang barna undir 18 ára að klámi með rafrænum launsum líkt og rafrænum skilríkjum.

Berglind Ósk spyr hvernig það væri að sinna fyrst kallinu um aukna fræðslu. Að hennar mati sé verið að leggja til ranga leið að markmiðinu.

„Klám hættir ekki að vera til þó aðgengi að því verði flóknara. Ný vandamál kalla á nýjar lausnir - ekki boð og bönn,“ segir hún í færslu sinni.