\"Nú er komið í ljós að forsætisráðherrahjónin eru skráð fyrir félagi á Tortóla.\"
Þannig hóf Björn Valur Gíslason varaformaður VG þingræðu sína áðan undir liðnum störf þingsins.
Hann sagði að komið væri á daginn að forsætisráðherrahjónin væru kröfuhafar í íslensku bankana. Íslenskur almenningur hefði eftir hrun þurft að berjast dag frá degi til að halda heimilum gangandi, standa í lappirnar stórskuldugur vegna falls krónunnar. Á sama tíma hefðu forsætisráðherrahjónin geymt fé sitt í erlendum skattaskjólum og höndlað með eigin auðævi. Sigmundur Davíð hefði viljað vita hverjir væru í raun eigendur bankanna erlendis, hrægammar. Komið væri á daginn að hann hafi sjálfur verið einn hrægammanna.
\"Það er allt rangt við þetta mál. Það stenst ekki lágmarkskröfur sem við gerum til stjórnmálamanna,\" sagði varaformaður VG. Hann krafðist þess að þingforseti frestaði fundi og forsætisráðherra yrði kallaður fyrir til að skýra mál sitt. \"Það væri farsakennt að halda þessum þingfundi áfram að óbreyttu.\"
Þórunn Egilsdóttir, Framsóknarflokki, krafðist þess eftir ræðuna að Björn Valur bæðist afsökunar á ummælum sínum. Allt væri uppi á borði hjá forsætisráðherrahjónunum. Málflutningur Björns Vals væri söguleg lágkúra.
Uppfært kl. 15:40: Einar K. Guðfinnsson þingforseti sagði rétt í þessu fráleitt að stöðva þingfund vegna fjármála eiginkonu færsætisráðherra.
Björn Valur sagði þá að málið snerist um að forsætisráðherra hefði verið kröfuhafi í íslensku bankana á sama tíma og hann sæti hinu megin borðsins að semja um lausnir vegna þrotabúanna. Það væri grafalvarlegt mál. Gera yrði forsætisráðherra færi á að gera grein fyrir sínu máli.
Unnur Brá Konráðsdóttir, Sjálfstæðisflokki, taldi málið snúast um jafnrétti. Að draga á þingi upp fjárhagsmálefni maka ráðherra í ríkisstjórn væri fráleitt og bæði Birni Vali og þinginu öllu til minnkunar og skammar.
Skítaleiðangur?
Uppfært: 15.50: Tveir ráðherrar Framsóknarflokksins m.a. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hjóluðu í umræðum um fundarstjórn í Björn Val vegna ummæla hans. Gunnar Bragi sagði að Björn Valur væri farinn í \"skítaleiðangur\" sem drægi virðingu Alþingis niður í svaðið.
Steingrímur J. Sigfússon, VG, taldi að ef siðareglur þingmanna sem til stendur að samþykkja hefðu þegar verið samþykktar væri um brot að ræða af hálfu Sigmundar Davíðs vegna hagsmuna hans og stöðu beggja megin borðsins.