Þingmaður segir sigmund "botnara"

Guðmundur Steingrímsson, þingmaður BF, kallaði Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra \"botnara\" á þingi í morgun undir liðnum Störf þingsins.

Með því brást Guðmundur við grein Sigmundar þar sem hann kallar Kára Stefánsson \"toppara\" í Fréttablaðinu í dag.

Guðmundur lýsti áhyggjum yfir því að kergja væri hlaupin í heilbrigðismál sbr. grein Sigmundar Davíðs. Hann væri sammála Kára um að skömm væri að framlögum til heilbrigðismála.

Forsætisráðherra mætti ekki komast upp með að fullyrða að framlög til spítala hefðu aldrei verið meiri. Ekki væri tekið tillit til verðlags, framlög til spítala væru nú 7% lægri en 2008. Ísland væri með mun lægra hlutfall af þjóðarútgjöldum til heilbrigðismála en Norðurlönd. Næstlægst af OECD-ríkjum, Mexíkó væri eitt ríkja neðar.

\"Ef Kári er toppari þá er Sigmundur Davíð botnari. Hann fer sífellt neðar og neðar, niður á æ lægra plan,\" sagði Guðmundur Steingrímsson.