Tregðu meirihlutans á Alþingi til að hækka bætur afturvirkt má rekja til þess að ríkisstjórnin telji að aldraðir og öryrkjar séu búnir að fá nóg. Það er til skammar, sagði Björn Valur Gíslason, VG seint á Alþingi í gærkvöld í umræðu um fjárlögin.
Þá hafði Páll Jóhann Pálsson, Framsóknarflokki, rætt að svo væri komið að örorkubætur væru orðnar hærri en lágmarkslaun. Ummælin féllu í deilu meirihlutans og minnihlutans um hvort bætur öryrkja skuli hækkaðar afturvirkt. Fyrir því talar stjórnarandstaðan og telur að öryrkjar eigi skilið hækkanir til móts við þá hópa sem kjararáð hefur hækkað afturvirkt en þar á meðal eru þingmenn.
Páll Jóhann sagði að hann væri ekki að segja að öryrkjar og aldraðir væru of sælir af þessum bótum. Þegar bætur með uppbót væru þó orðnar hærri en lágmarkslaun, væri réttara að hækka lægstu launin „áður en við förum með bætur yfir þau.“