Helgi Hrafn Gunnarsson , þingmaður Pírata, bregst af hörku við frétt á visir.is þar sem fv. aðstoðarmaður Hönnu Birnu, Gísli Freyr Valdórsson, segist þjást fyrir þær sakir að hún hafi þurft að hætta sem ráðherra og mætt miklum mótbyr síðan vegna hans mistaka. Helgi Hrafn gefur lítið fyrir það sem kemur fram í fréttinni.
Í athugasemd sinni hefur þingmaðurinn mál sitt þannig: „Andskotinn hafi það, hvað það fer í taugarnar á mér þegar fólk lætur eins og að þetta snúist um hvort Hanna Birna hafi vitað af gjörðum Gísla Freys eða ekki.“
Hann rekur að það skipti ekki máli en bara djóksins vegna að hann gæfi sér það hafi það engu breytt um viðbrögð Hönnu Birnu sem einkenndust á löngum tíma „af nákvæmlega hárröngum viðbrögðum við hvert einasta fótmál, viðbrögðum sem einkennast af vanhæfni, óheiðarleika, afneitun og valdablindu. Hanna Birna mun þurfa að sitja undir blammeringum þar til hún viðurkennir að þetta \"svokallaða lekamál\" séu ekki bara einhver mistök sem við gerðum öll, heldur fyrst og fremst samansafn af hennar eigin mistökum sem hún gerði við hvert einasta fótmál við gang málsins. Hanna Birna er ekkert fórnarlamb í þessu máli.“
Þingmaðurinn rekur ýmislegt til stuðnings máli sínu og nefnir ósannindi fyrrum ráðherrans ítrekað og óeðlileg afskipti af lögreglurannsókn sem beindist gegn henni sjálfri.
„Lekamálið snýst í meginatriðum um það hvernig hún hagaði sínum eigin gjörðum sem ráðherra. Hvort hún vissi af lekanum eða ekki er fullkomið aukaatriði eftir það sem á undan er gengið. - Það reyndar trúir því varla nokkur maður í alvörunni að hún hafi ekki vitað af lekanum, en segjum bara samt, að gamni, að hún hafi ekkert vitað af honum. Það breytir því ekki að hún gerði lítið úr málinu, sagði Alþingi ósatt, misnotaði rekstrarfélag ráðuneytanna til hvítþvottar og hafði í hótunum við lögreglustjórann sem rannsakaði málið. Enn þann dag í dag gerir hún lítið úr málinu og lætur eins og að hún geti látið alla ábyrgðina í hendur Gísla Freys.
Það er það versta við þetta allt saman. Skítur skeður og lífið heldur áfram... en það allra versta er að hún lætur ennþá eins og eitthvað fórnarlamb. Eins og að málið snúist í grundvallaratriðum um það hvort hún hafi vitað af gjörðum Gísla Freys eða ekki. Hvort sem hún vissi það eða ekki, þá gerði hún allt sem í sínu valdi stóð til þess að koma í veg fyrir að sannleikurinn yrði á endanum ljós.“