Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, hefur hafið hópfjármögnun hinu svokallaða Þingspili en söfnunin fer fram í gegnum Karolina Fund og þurfa fimm þúsund evrur, eða um 800 þúsund krónur, að safnast til að spilið fari í framleiðslu.
„Þingspilið varð til í hitamóki eina desember nótt fyrir rúmu ári. Stuttu áður hafði höfundur rekist á Gísla í Nexus (spilabúð) sem sagði vinsælustu spilin í dag vera 'Partýspil' sem fólk lærir strax, tekur stuttan tíma að spila og séu það skemmtileg að fólk vilji strax spila aftur. Fyrri hugmyndir höfundar um stjórnmálaspil röðuðust svo inn í partýspila ramman í hitamókinu,“ segir Jón Þór um spilið en hann segir spilið nánast hafa skrifað sig sjálft.
Hægt að leggja hátt í 50 þúsund krónur í söfnunina
Samkvæmt lýsingu spilsins á Karolina Fund er spilið saman sett af 52 spilum í þremur bunkum, formanna, málefna, og framtíðar bunki, er fyrir þrjá til átta spilara og tekur allt frá korteri upp í 45 mínútur.
„Í spilinu geta spilarar kosið um málefni og stundað pólitíska spillingu til að fá fleiri þingmenn, ásamt því að láta aðra spilara missa þingmenn í hneykslum (nema þeir spili út "Lögbanni á fjölmiðla" til að stöðva hneykslið eða "Hvítþvott" til að fá þingmennina aftur),“ segir enn fremur en þeir sigra sem eru með Formannaspil og hafa flesta þingmenn í lok umferðar.
Þeir sem leggja söfnuninni lið geta heitið allt frá 3300 krónum, sem felur í sér eitt spil, upp í 49.500 krónur, þar sem fólk fær fjögur árituð spil með auka Formannsspili og sérstakt Formannaspil af kaupanda og skopmynd teiknaða af Halldóri.