Páll Valur Björnsson, þingmaður BF, hélt því fram á Alþingi í dag að valinn hópur fólks ræki áróður fyrir sérhagsmunum með misnotkun á útgáfu Morgunblaðsins.
Efni ræðu þingmannsins var að Ísland stendur Norðurlöndum langt að baki í fjölmiðlafrelsi skv. alþjóðlegum samanburði, m.a. vegna þess að stanslaust er að fjölmiðlun sótt af hálfu valdhafa og peningamanna og þá ekki síst Ríkisútvarpinu. Páll Valur ræddi mikilvægi frjálsra fjölmiðla sem komið hefði í ljós síðari vikur með afhjúpun um spillingu m.a. æðstu ráðamanna íslenskra. Vald fjármálamanna og stjórnmálamanna og ítök þeirra í fjölmiðlum væri mikið áhyggjuefni.
Sérstaklega ræddi þingmaðurinn Morgunblaðið og fór hörðum orðum um útgáfu þess og misnotkun blaðsins sem fjölmiðils. Mogginn væri dagblað í eigu útgerðarmanna sem hefðu auðgast vegna afnota af sameiginlegri auðlind. Í gegnum almannafé eða það fé sem frá almenningi kæmi hefðu útgerðarmenn styrk til að reka \"massívan áróður fyrir sérhagsmunum\". Þingmaðurinn sagði óþolandi að almenningur væri látinn kosta slíkan áróður. Öllu máli skipti að hafa öflugt Ríkisútvarp og smáa en óháða miðla, óvarða fyrir ítökum stjórnmálamanna. Það væri mikið áhyggjuefni að sumir þingmanna í salnum sem \"gjömmuðu\" undir ræðu þingmannsins svo vitnað sé í ræðu Páls Vals beiti Rúv ofbeldi.
\"Þetta snýst um varnir gegn spilingu og sérhagsmunapoti,\" sagði þingmaðurinn. \"Á tímum upplausnar er þörf fyrir góðar upplýsingar aldrei meiri en nú... við verðum að standa vörð um Rúv og fjölmiðlafrelsi.\"