Þingmaður í lífshættu: „til allrar hamingju var hún ekki niðursokkin í facebook“

Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, greinir frá því í stuttri hugvekju á Facebook að litlu hafi mátt munað fyrir nokkrum vikum að hann yrði ekki eldri. Guðmundur Andri var þá akandi á hægri helming og lýsir atburðarásinni með þessum hætti:

„ ... vinstra megin við mig, rétt fyrir framan er manneskja sem ákveður að færa sig á hægri helminginn, og eins og tíðkast hér á landi beygir hún bara án þess að gefa stefnuljós. Hún sér mig sennilega ekki í hliðarspegli - hafi hún gáð - og nú stefnir bíllinn óðfluga inn í minn. Til allrar hamingju var hún ekki að hlusta á hátt stillta músík eða niðursokkin í Facebook svo að hún heyrði neyðarflautið í mér og sveigði til baka á síðustu stund, áður en bílinn skylli á mínum og ég myndi þeytast út í kant eða upp á umferðareyju.“

Þingmaðurinn segir að þetta hafi átt sér stað á nokkrum sekúndum. Guðmundur Andri endar pistilinn á þessum orðum:

„Á eftir hugsaði ég með mér hvað þetta er nú fáránlegt fyrirkomulag, að við séum öll, hvert og eitt, að inna af hendi þetta vandasama og frekar leiðinlega verkefni, að aka bíl. Vonandi gengur öllum vel sem eru á heimleið í dag og vonandi heldur fólk einbeitingunni og stillir sig um áhættuhegðun.“