Að gefa einstaklingum leyfi til að ákveða í hvað þeir setja skattfé okkar allra er fáránleg og gamaldags hugmynd,\" segir Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar vegna fréttar Fréttablaðsins í dag um að Gunnar Bragi Sveinsson hafi á síðasta degi sínum í utanríkisráðuneytinu í síðustu viku notað tækifærið og dælt einni milljón króna út af skúffufé utanríkisráðuneytisins til nokkurra aðila, þar á meðal félagsskapar sem kallast Landsbyggðarvinir.
Að leyfa einstaklingum að ákveða sjálfir í hvað skattfé fari býr til þá falsmynd að um sé að ræða persónulegan greiða ráðherrans til styrkþegans, segir Róbert Marshall.
Hann bætir við:
\"Svona gripdeildir á síðustu metrunum sýna auðvitað að Gunnar Bragi telur sig eiga einhverskonar rétt á að útdeila þessum fjármunum almennings í skiptum fyrir stuðning síðar (hann á undir högg að sækja innan framsóknar á Vestfjörðum og reynir að styrkja stöðu sína þar). Það á að leggja þetta fyrirkomulag af,\" segir Róbert Marshall í nýrri færslu um málið á facebook.