Flugið verði niðurgreitt eins og strætó

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vill að innanlandsflugið verði hluti af almenningssamgöngukerfinu. Ríkið eigi að niðurgreiða flugfargjöld til hinna stærri þéttbýlisstaða á sambærilegan hátt og ríkið leggur á hverju ári um 900 milljónir í almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og um 400 milljónir í flug til smærri staða á landinu.

\"Mikið réttlætismál sem myndi ekki einungis styrkja innanlandsflugið og fjölga og dreifa ferðamannönnum um landið heldur líka minnka umferð og auka öryggi á þjóðvegum landsins,\" skrifar Höskuldur í færslu á eigin fésbók þar sem hann tengir við umfjöllun um ráðstefnu um samgöngumál sem fram fór í Hofi í vikunni.

Verðhækkanir í innanlandsflugi hafa m.a. verið skýrðar með óhagkvæmni, að umferð um Reykjavíkurflugvöll sé minni en hún var, hafi dregist saman um 10% á nokkrum árum. Sú þróun hefur orðið á sama tíma og ferðamönnum til landsins stórfjölgar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði í umræðuþættinum Kvikunni á Hringbraut í vikunni að innanlandsflugið í því formi sem það væri nú mótaðist af pólitískum liðaskiptingum. Annar tveggja formanna Hjartans í Vatnsmýrinni sagði niðurstöðu skoðanakakönnunar þar sem 70.000 manns vildu halda miðstöð innanlandsflugsins áfram í Vatnsmýrinni sýna að Dagur og félagar í borgarstjórn hefðu ekki umboð til að leggja völlinn af og breyta í íbúabyggð.

Um það bil 60% farþega í innanlandsfluginu greiða sinn flugmiða úr eigin vasa eftir því sem fram hefur komið hjá öðrum formanni Hjartans í Vatnsmýrinni, Njáli Trausta Friðbertssyni. Hátt verð hvers flugmiða innanlands er afar íþyngjandi og tekur nokkur hluti facebookvina undir með Höskuldi Þórhallssyni að eðlilegt sé að niðurgreiða flugið sem hluta af almannasamgöngum.