Róbert Marshall var gestur í Fólki með Sirrý á Hringbraut í gærkvöld og lýsti því hvernig lífið varð stærra þegar hann leitaði sér aðstoðar vegna áfengisvanda og setti tappann í flöskuna. Hann benti á að áfengismeðferð er kölluð ,,viðgerð" í Færeyjum. Og eftir slíka viðgerð varð líf hans blæbrigðaríkara og skemmtilegra.
Hann óttaðist að lífið yrði leiðinlegt án áfengis, að það væri óhjákvæmilegur fórnarkostnaður þess að lifa lífinu edrú en annað kom á daginn. Hann er betur á sig kominn og lífið mun skemmtilegra en áður sagði Róbert í viðtalinu. Og hann bætir við að þingmenn eigi að vera edrú. Þjóðin eigi heimtingu á að fólk sem gegnir þessum stöðum sé ekki illa timbrað eða með hugann við flöskuna heldur alveg edrú.
Fólk með Sirrý er frumsýnt öll þriðjudagskvöld klukkan 20.00.
Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni með því að smella hér.