Það er óásættanlegt að vél sem keypt var notuð til landsins af gerðinni Bombardier 400 skuli bila ítrekað og er nú svo komið að tilfinning notenda innanlandsflugsins á Íslandi er sú að flugöryggi sé á niðurleið. Þetta segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður í nýrri færslu á facebook.
Eins og Hringbraut hefur greint frá hafa komið upp a.m.k. tvö tilvik þar sem nýkeypt vél í flota innanlandsflugsins hefur bilað, jafnvel er talið að um þrjú tilvik sé að ræða á aðeins einum mánuði. Vísir sagði fyrstur fjölmiðla frá bilun sem kom upp í gær.
\"Get ekki orða bundist. Var um borð þegar vélin þurfti að lenda með tilheyrandi látum í Keflavík en átti að fara til Egilsstaða. Í gærkveldi var svo dóttir mín að koma norður og þá var blessuð vélin biluð enn eina ferðina og ferð sem átti að fara kl. 20:30 til Akureyrar lenti um miðnætti. Skýringin var jú fyrst bilun og svo þurfti áhöfnin hvíld. Þjónustan versnar og tilfinning fyrir öryggi minnkar. Þetta er óásættanlegt og klárt mál að Flugfélag Íslands þarf að bregðast við með trúverðugum hætti,\" segir þingkonan.