Þingmaður: af hverju þagði sigmundur?

\"Afhverju sagði SDG okkur ekki frá peningunum í skattaskjólinu þegar hann kom inn á þing?\"

Þannig spyr Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingmaður Samfylkingar í færslu á facebook.

\"Óttaðist hann að kjósendur ættu erfitt með að kyngja því? Auðvitað. Og það er sama hvernig Framsóknarmenn hamast nú með barnslegum aðdróttunum í garð þeirra sem gagnrýna málið, staða forsætisráðherra versnar með hverjum deginum,\" bætir þingkonan við.

Sigríður Ingibjörg tengir í facebook færslu sinni við pistil Þorsteins Sæmundssonar þingmann Framsóknarflokksins þar sem hann hjólar í þá sem hafa gagnrýnt Sigmund Davíð  vegna Tortólamálsins svokallaða. \"Það hjálpar honum ekkert að segja að þeir sem gagnrýni hann séu \"í vandræðum með sjálfsmynd sína\", fólk trúir ekki svona vitleysu en skilur hins vegar mæta vel að forsætisráðherra hefur leynt kjósendur mikilvægum staðreyndum um fjárhagslega hagsmuni sína og fjöslskyldu sinnar. Svo er líka siðlaust að geyma peninga í skattskjóli því það gerir fólk sem vill ekki greiða skatta sína og skyldur til samfélagsins. Fram kemur í Fb færslu eiginkonu forsætisráðherra að hún hafi greitt sína skatta og skyldur. Ég vona að hún sé að segja satt en það er ansi erfitt að sannreyna slíkar fullyrðingar um eignir sem eru í skjóli á Tortóla. Nú þarf allar upplýsingar upp á borð svo fólk geti metið hvort forsætisráðherra sé treystandi.\"