Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu var 352 talsins í vikunni 10. júlí til 16. júlí. Fjöldi þinglýsinga er því vel yfir meðallagi á tímabilinu, en á síðustu 12 vikum hefur meðaltal þinglýsinga verið 87 samningar á viku.
Í samtali við fréttastofu RÚV segir Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu að talsverða yfirvinnu sé verið að vinna þessa dagana til að vinda ofan af áhrifum verkfalls lögfræðinga. Til að mynda var fjögurra daga skammti af skjölum þinglýst á laugardaginn, en starfsfólk hefur aldrei áður unnið um helgar.
352 kaupsamningar voru þinglýstir á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu. 268 samningar voru um eignir í fjölbýli, 65 um sérbýli og 19 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var um 13 milljarðar, en meðalupphæð á samning var 37,1 milljón króna.
Á sama tíma var 19 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru þrír samningar um eignir í fjölbýli, 14 samningar um sérbýli og tveir samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 501 milljón króna og meðalupphæð á samning 26,4 milljónir króna.
18 kaupsamningum var þinglýst á Akureyri á tímabilinu. Þar af voru 11 samningar um eignir í fjölbýli, fimm samningar um sérbýli og tveir samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 381 milljón króna og meðalupphæð á samning 21,2 milljónir króna.
Á Árborgarsvæðinu var níu kaupsamningum þinglýst. Þeir voru um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 214 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23,7 milljónir króna.