„Þegar ráðherra og þingmaður bera embætissmenn röngum sökum í pólitískum tilgangi, vitandi að þeir geta ekki borið af sér sakir á sama vettvangi, þá er það ljótur leikur og hann á ekki að líðast.“
Þetta segir Oddný G. Harðardóttir, fyrrum fjármálaráðherra og núverandi þingkona Samfylkingar í viðtali við Hringbraut um framgöngu þeirrar Eyglóar Harðardóttur ráðherra og Vigdísar Hauksdóttur, báðar eru þingmenn Framsóknarflokksins.
„Þær hafa leikið verulega ljótan leik sem sem á ekki að líðast. Við eigum ekki að samþykkja að ráðherrar og þingmenn geti leikið þennan leik. Þær vita báðar að embættismenn geta ekki borið hendur yfir höfuð sér,“ bætir Oddný við.
Ástæða ummæla Oddnýjar er tvíþætt en koma við tvo ólíka tímapunkta. Annars vegar þegar Eygló Harðardóttir ráðherra sendi starfsmönnum fjármálaráðuneytis orkustykki í apríl í fyrra. Það hafi verið ósmekklegt og hafi gefið til kynna að ráðherra teldi starfsmennina lata. Hins vegar gerir Oddný alvarlega athugasemd við þau ummæli Vigdísar Hauksdóttur á Bylgjunni í gær að starfsmenn fjármálaráðuneytisins hafi framið glæp. Hafi framið skjalafals með því að gögn um endurreisn bankanna séu ekki aðgengileg.
„Ég er ekki þekkt fyrir að nota stór orð hún gekk algjörlega fram af mér hún Eygló þegar hún sendi orkustangirnar, á sama tíma og fólkið í ráðuneytinu vann daga og nætur. Þetta var ofsalega ósanngjarnt, að væna þá um leti og telja að letin bitnaði á störfum þeirra. Ég hef hugsað um hvað við vorum samdauna að mótmæla ekki kröftuglegar á þeim tíma,“ segir Oddný um þátt velferðarráðherra en orkustykkin sendi Eygló í apríl í fyrra og póstaði þá á eigin facebook-síðu. Sagði Eygló þá að hjá velferðarráðuneytinu biði fólk spennt eftir kostnaðarmati á tveimur frumvörpum, annar vegar um jöfnun húsaleigu- og vaxtabóta og hins vegar leigjendafrumvarpi. Eygló kallaði sendingu sína þá góðlátlega orðsendingu en Oddný er á allt öðru máli.
Hvað ummæli Vigdísar Hauksdóttur varðar segir Oddný að þau séu vissulega alvarlegri.
„Vigdís er beinlínis að segja að þeir fremji glæp. Af hverju er hún að gera það? Hún er að tala inn í mikla tortryggni og þykist ekki geta sagt neitt meira vegna trúnaðar en það er þingið sem býr til reglurnar en ekki embættismenn.“
Í þingræðu á Alþingi í dag sagði Oddný að þingmenn í öðrum löndum hefðu sagt af sér fyrir minni sakir en þessar.
Telurðu að Eygló og Vigdís eigi að segja af sér?
Oddný segist ekki hafa sett fram þá kröfu en segir:„Mér finnst alvarlegra það sem ráðherra gerði, af því að það er meiri vigt í því, þótt þingmaðurinn beri fram miklu alvarlegri sakir að halda fram að glæpur hafi verið framinn.“