Samkomulag hefur náðst á milli þingflokka um að ljúka þingstörfum næstkomandi föstudag. Samkvæmt upphaflegri starfsáætlun átti Alþingi að ljúka störfum 29. maí, en gerir það ekki fyrr en 3. júlí, eða 36 dögum síðar.
Á meðal þeirra mála sem stjórnarflokkarnir gáfu eftir til að gera þinglok möguleg voru afgreiðsla makrílfrumvarpsins og færsla fjölmargra virkjanakosta úr biðflokki í nýtingarflokk rammaáætlunar. Stærsta málið sem verður klárað á síðustu dögum þingsins er afgreiðsla þeirra frumvarpa sem snúa að áætlun stjórnvalda um losun hafta, meðal annars frumvarp um stöðugleikaskatt.
Makrílfrumvarpinu verður frestað fram á haustþing og ein breyting gerð á rammaáætlun með því að færa Hvammsvirkjun úr biðflokki í nýtingarflokk.
Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld mestu vonbrigðin varðandi þinglokssamkomulagið vera það að makrílfrumvarpið fari ekki í gegn. Þar hafi meirihlutinn mætti minnihlutanum í öllum hans kröfum en án árangurs. Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingar, sagði á sama vettvangi að það hefði aldrei verið raunsætt að afgreiða fleiri mál en þau sem nú hefur samist um að hleypa í gegn. Í ljósi þess hefði verið hægt að komast að þessari niðurstöðu strax í máli en samkomulagið hefði hins vegar tekið ákveðinn tíma.