Þingholtin sjö sinnum dýrari en bolungarvík

Þingholtin í Reykjavík eru með hæsta heildarmat fasteigna á landinu, eða samanlagt verðmat fasteignar og lóðar, þar sem sambærilegar fasteignir á hvorum stað eru bornar saman. Lægsta verðmatið er í Bolungarvík, annað árið í röð. Heildarmatið munar um 85 milljónum króna milli þessara staða. Þingholtin eru metin á 99 milljónir en Bolgunarvík 14,5.