Þingfundur ennþá í uppnámi

Engin samstaða er á milli stjórnar og stjórnarandstöðu um þingstörf dagsins, en á fundi Alþingis sem hófst klukkan 13:30 átti að freista þess að leggja fram frumvarp stjórnvalda um frestun á verkföllum heilbrigðisstarfsfólks. Það hefur enn ekki tekist.

Verkföllin frestast til 1. júlí þegar af samþykkt laganna verður en náist ekki samningar fyrir næstu mánamót kemur til kasta gerðardóms að ákveða launakjör hjúkrunarfræðinga, geislafræðinga, lífeindafræðinga og náttúrufræðinga og annarra starfsstétta sem verið hafa þar í verkfalli síðustu vikur.

Ljóst er af þingstörfum í dag að stjórnarandstaðan hefur engan áhuga á að greiða götu frumvarpsins í gegnum þingið, en þingfundurinn í dag hefur að mestu leyti farið í dagskrárliðinn fundarstjórn forseta.

Mótmælastaða heilbrigðisstarfsfólks er fyrir utan þinghúsið þar sem sagt er að lagasetning kalli á fjöldauppsagnir. Ólafur G. Skúlason formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir yfirvofandi lagasetningu vera aðför að heilbrigðiskerfinu og forkólfar BHM segja gerninginn alvarlegt inngrip í stjórnarskrávarinn rétt almennings.

Ólafur var í viðtali við RÚV fyrr í dag og sagði þar að lagasetningin kunni að hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér. „Okkar markmið með þessari kjarabaráttu var að gera starfið samkeppnishæft, þannig að fólk sjái hag sinn í því að vera hjúkrunarfræðingar og vinna í því sem þeir hafa menntun til. Ég er ansi hræddur um að þetta leiði til þess að þeir horfi til annarra átta, til annarra starfa og til annarra landa og það mun einungis veikja heilbrigðiskerfið hér til framtíðar.“