Þingflokkur sjálfstæðisflokksins að missa þolinmæðina gagnvart davíð

Er Sjálfstæðisflokkurinn að missa þolinmæðina fyrir Davíð Oddssyni, fyrrverandi formanni flokksins og núverandi ritstjóra Morgunblaðsins? Það er margt sem bendir til þess. Í áhugaverðri samantekt á Vísi er farið yfir hvernig þingflokkur Sjálfstæðisflokksins virðist búinn að missa bæði trú og þolinmæði. Bent er á að það sæti tíðindum að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi kosið að birta afmælisgrein í tilefni 90 ára flokksins í Fréttablaðinu en ekki Morgunblaðinu, enda saga flokksins og Morgunblaðsins samofin allt frá stofnun flokksins, auk þess sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari flokksins, hafi skotið fast á Davíð í grein í Morgunblaðinu.

Í samantektinni er fullyrt að Davíð hafi á löngum tíma verið hafinn yfir gagnrýni innan flokksins og að orð hans hafi verið lög.

Dæmi er tekið af Vilhjálmi Egilssyni, formanni Endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins, sem vildi árið 2009 leggja fram tillögur sem sneru að uppgjöri flokksins við hrunið. Þær tillögur voru slegnar leiftursnöggt af borðinu af Davíð á landsfundi flokksins. Var Vilhjálmur afar ósáttur.

Samstarf í stað málgagns

Morgunblaðið var yfirlýst málgagn Sjálfstæðisflokksins um langt skeið og sátu ritstjórar blaðsins lengi þingflokksfundi. Árið 1983 fóru ritstjórar Morgunblaðsins, Matthías Johannessen og Styrmir Gunnarsson, fram á að blaðið yrði ekki lengur málgagn flokksins en óskuðu þess að gott samstarf yrði áfram milli blaðs og flokks í framtíðinni.

Davíð var ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins árið 2009 og þótti þá mörgum líklegt að blaðið myndi færast nær því að vera málgagn flokksins að nýju. Eftir tíu ára ritstjórnarsetu Davíðs er þó verulega farið að súrna í samskiptum milli blaðsins og flokksins. Hafa þau sennilega aldrei verið eins erfið og bilið aldrei meira á milli flokks og blaðs.

Davíð gagnrýnir forystu flokksins sem svarar fyrir sig

Bent er á að Bjarni Benediktsson hefur lengi verið talinn undir hæl Davíðs, en sá síðarnefndi hefur farið mikinn í gagnrýni á núverandi forystu flokksins. Í endurminningabók Helga Magnússonar, Lífið í lit, segir hann að Davíð hafi talið Bjarna fljóta sofandi að feigðarósi þegar stjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar var að liðast í sundur:

„Ég veit ekki hvernig Bjarni hugsar þetta, en þegar ég var forsætisráðherra þá var litið á það sem fullt starf!“

er haft eftir Davíð.

Er því velt upp hvort þolinmæði Bjarna sé á þrotum gagnvart þrálátri gagnrýni Davíðs með því að birta ekki áðurnefnda afmælisgrein í Morgunblaðinu.

Í tilefni afmælisins birti Áslaug Arna einnig grein í Morgunblaðinu þar sem hún svarar nýlegri gagnrýni Davíðs og skýtur á hann. Virðist þolinmæði hennar sömuleiðis á þrotum.

Davíð sagði í leiðara Morgunblaðsins fyrir rúmum tveimur vikum:

„Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að fóstureyðingarlögin, sem eru önnur af tveimur afmælisgjöfum flokksforystu til fólksins síns, séu komin úr Valhöll, herbúðum þess flokks. Það vekur nokkra undrun, þótt viðurkenna megi að það sé fátt sem veki undrun nú orðið. Uppfinningamenn hafa lengi reynt að finna upp eilífðarvélina og ekki tekist. Stjórnmálaflokkar eru ekki eilífir og hafi þeir ekki lengur fyrir neinu að berjast styttist í tilverunni og þýðir ekki að fárast yfir því. Enda þarf það í sjálfu sér ekki endilega að vera harmsefni.“

Áslaug svarar þessu svo:

„Rétt er það sem áður hefur verið haldið fram í þessu blaði að uppfinningamenn hafa lengi reynt að finna upp eilífðarvélina og ekki tekist. Því er mikilvægt að festast ekki í fortíðinni, heldur þróast í takt við nýja tíma og leiða þær óumflýjanlegu breytingar sem framtíðin mun hafa með sér fremur en að óttast þær.“

Ljóst er að henni þykir fulltrúi úreltra hugmynda. Áslaug segir einnig: „Það er ekki hlutverk Sjálfstæðisflokksins að standa vörð um úreltar hugmyndir sem þóttu einu sinni góðar. Við gerum greinarmun á grunngildum og einstaka stefnumálum eða úrræðum sem einu sinni virkuðu. Um leið og við berum virðingu fyrir sögunni er mikilvægt að við mótum framtíðina.“

Þessi skot Áslaugar á Davíð eru sérstaklega athyglisverð í ljósi þess að hún er dóttir Sigurbjörns Magnússonar, sem hefur verið einn nánasti samstarfsmaður Davíðs í gegnum tíðina og er jafnframt formaður stjórnar Árvakurs, eignarhaldsfélags Morgunblaðsins.

Þriðji orkupakkinn skipt flokknum í tvær fylkingar

Ein af ástæðunum fyrir því að þolinmæðin gagnvart Davíð virðist á þrotum hjá þingflokki Sjálfstæðisflokksins er afstaða hans til þriðja orkupakkans. Davíð hefur óspart notað Morgunblaðið til að fordæma afstöðu flokksins í orkupakkamálinu, en Davíð setur sig alfarið á móti innleiðingu þriðja orkupakkans á meðan þingmenn Sjálfstæðisflokksins styðja nánast allir innleiðingu.

Davíð er sammála áðurnefndum Styrmi Gunnarssyni í einörðum málflutningi hans gegn þriðja orkupakkanum, en Styrmir telur að málið geti klofið Sjálfstæðisflokkinn í herðar niður. Davíð virðist láta sér fátt um finnast um það, ef marka má áðurnefnd orð hans í leiðara Morgunblaðsins: 

„Stjórnmálaflokkar eru ekki eilífir og hafi þeir ekki lengur fyrir neinu að berjast styttist í tilverunni og þýðir ekki að fárast yfir því. Enda þarf það í sjálfu sér ekki endilega að vera harmsefni.“

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og síðar einn stofnenda Viðreisnar, velti þessari athyglisverðu stöðu sem upp er komin fyrir sér í pistli á Hringbraut í gær.

Hann er sammála því að Sjálfstæðisflokkurinn sé klofinn í tvær fylkingar vegna þriðja orkupakkans. „Ritstjórar Morgunblaðsins hafa verið ódeigir í baráttunni gegn þriðja orkupakkanum. Fyrir vikið er Sjálfstæðisflokkurinn klofinn í tvær fylkingar,“ segir Þorsteinn.

Hann telur andstöðu þeirra skiljanlega með hliðsjón af því að þeir séu á móti öllu sem gæti opnað dyr að aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hann reiknar með að þriðji orkupakkinn verði samþykktur og telur líklegt að sáttaferli fari í hönd eftir það. Þorsteinn segir:

„Þegar þriðji orkupakkinn verður samþykktur á Alþingi má fastlega reikna með að allt kapp verði lagt á að sættir takist á ný milli þingflokks sjálfstæðismanna og Morgunblaðsins.“

Þorsteinn reiknar þó með að Davíð muni áfram standa fastur á sínu, sem gæti gert sáttaferlið erfiðara.

„Hætta er á að frjálslyndari armur flokksins, sem hefur blómstrað að undanförnu með varaformann og ritara flokksins í fremstu víglínu, verði knúinn til þess að draga í land í þeim tilgangi. Það á einnig við um utanríkisráðherrann sem staðið hefur sig einstaklega vel í umræðunni.“