Nýjar mælingar Hagstofu Íslands benda til þess að ákveðin svæði á landsbyggðinni séu í stórsókn hvað íbúafjölda varðar, á kostnað suðvesturhornsins, en á milli fjórða árshluta 2016 og 2017 var fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu 2,6% en að meðaltali 3,7% utan þess.
Þóroddur Bjarnason, formaður stjórnar Byggðastofnunar, sem lengi hefur fylgst með þróun íbúafjölda hér á landi og lagt stund á fræðirannsóknir á því sviði, vekur athygli á þessu á fésbókarsíðunni Umræður um byggðaþróun: \"Það kemur kannski ekki á óvart að fjölgunin sé mikil á Hvítársvæðinu í seilingarfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu,\" skrifar hann, en heldur áfram: \"Einhvern tímann hefði maður hins vegar látið segja sér það tvisvar eða þrisvar að fjölgunin væri líka meiri í Þingeyjarsýslum, austanverðu Suðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum en á höfuðborgarsvæðinu,\" botnar hann tilskrifið.
Tölurnar, sem hann vitnar til, eru annars þessar:
Þingeyjarsýslur: +7,9%
Árborgarsvæðið: + 5,7%
Austanvert Suðurland: +3,3%
Norðanverðir Vestfirðir: +3,0%
Höfuðborgarsvæði: +2,6%
Austurland annað: +1,9%
Akureyri: +1,7%
Mið-Austurland: +1,6%
Norðanvert Vesturland: 1,6%
Eyjafjörður annað: + 1,4%
Skagafjörður: +0,2%
Húnavatnssýslur: 0,0%
Sunnanverðir Vestfirðir: -0,6%
Strandir: -3,2%
heimild: Hagstofa Íslands