Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra gagnrýndi stefnu vinsælasta stjórnmálaaflsins á Íslandi í dag á þingi Viðskiptaráðs í gærdag og sagði hana bæði óábyrga, hættulega og innihaldslausa.
Athygli vakti að Sigmundur Davíð varði drjúgum hluta ræðu sinnar í að hnýta í þetta stjórnmálaafl - og enda þótt hann nefndi aldrei Pírata á nafn var augljóst við hverja hann átti í langri og efnismikilli ræðu sinni sem fjallaði drjúgum um samspil útgjalda og tekna í samfélaginu; verðmætasköpunin væri forsenda þess að hægt væri að huga að samneyslunni.
Í þessu efni nefndi hann hugmynd Pírata um 350 þúsund króna borgaralaun sem galna hugmynd sem væri í senn óábyrg og hættuleg. Hún væri dæmi um pólitískt framlag á síðari tímum sem kæmist inn í umræðuna gagnrýnislaust, en kostaði vissulega sitt og myndi líklega leggja samfélagið á hliðina ef hún kæmist til framkvæmda.
Kostnaðurinn af henni væri um 100 milljarðar á mánuði, 1200 milljarðar á ári - og allir sæju það í hendi sér hvaða afleiðingar svona óábyrgar hugmyndir hefðu fyrir samfélagið því ekki væri um annað að ræða en að skattleggja þjóðina í drep til að eiga fyrir þessu gæluverkefni Pírata.