Helga Björk djákni í Vídalínskirkju og myndlistarkennari fann leiðina upp eftir lífshættuleg veikindi. Hún var þrisvar send heim af bráðamóttöku þar sem hún var talin vera með geðsjúkdóm, eitthvað sem var röng greining og lyf við því gerðu hana fárveika. Hún segir manninn sinn hafa tekið í taumana þá:
„Það endaði á því að maðurinn minn bar mig út úr þessari veröld á bráðamóttökuna og sagði bara „þið verðið að hjálpa henni, ég get þetta ekki“. Og þá er tekin mænustunga og ég man ekkert eftir þessu“, segir Helga Björk sem bendir á að fáir leiðarvísar séu til um hvað fólk eigi að gera sem sé lifi við stöðuga örmögnun.
„Þá kemur í ljós að ég er komin með vírus og heilahimnubólgu sem er bara að klára mig og það er komin lifrarbólga af því að ég er að taka lyf við einhverju sem er ekki að mér“, og á Helga Björk þar við að hún var sett á geðhvarfalyf þegar staðreyndin var að líkaminn var að gefa sig vegna þess að hún hafði gengið fram af sér og var „útbrunnin“. Sú greining kom að lokum í endurhæfingu á Reykjalundi. Helga Björk hefur lært í dag að vinna gegn banvænni streitunni. Og með hjálpa VIRK endurhæfingarsjóði varð það möguleiki.
Margir ætla sér að hlaða batteríin í sumarfríinu og ná úr sér streitu og stressi. En hvað ef sumarfríið er ekki nóg? Hvað ef við erum hreinlega útbrunnin? Í Þjóðbraut í kvöld heyrum af þessu hjá Helgu Björk sem „brann út“ fyrir nokkrum árum, þá starfandi sem myndlistarkennari.