Birkir Jón Jónsson, fyrrverandi varaformaður og þingmaður Framsóknarflokksins hvetur flokksmenn á facebook síðu sinni til að standa saman en ekki sundrast. Birkir Jón skrifar þetta á facbook síðuna sína en hann situr nú´í bæjarstjórn Kópavogs fyrir flokkinn. Hann ákvað að fara ekki aftur fram til þings haustið 2012 og nefndi persónilegar ástæður en þá tók Sigmundur Davíð við oddvitasæti hans í Norðaustur kjördæmi. Birkir var varaformaður í formannstíð Sigmundar Davíðs.
Birkir Jón skrifar meðal annars að Framsóknarflokkurinn sé „samfélag” sem hafi áorkað miklu.
„Þéttum raðirnar kæru vinir. Framsókn hefur með málefnalegum hætti haldið ríkisstjórninni við efnið að undanförnu - og ekki veitir af! Við þörfnumst kröftugs Framsóknarflokks - en ekki sundrungar”, skrifar Birkir.
Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknar hefur fagnað stofnun nýs félags Sigmundar Davíðs sem nefnist Framfarafélagið og hyggst ganga í það. Sigmundur segir þetta nýjan umræðuvettvang en ekki nýjan klofning úr flokknum. Ljóst er af skrifum Birkis Jóns að hann styður ekki þetta Framfarafélag.