Morgunblaðið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins birtir í dag leiðbeiningar til að draga úr líkum á að vera bitinn af lúsmý. Þá er þar einnig að finna leiðbeiningar hvert eigi að leita ef ofnæmisviðbrögð gera vart við sig. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins birtir nokkur mikilvæg ráð í Morgunblaðinu í dag og skrifar:
- Lúsmý bítur inni í húsum og á nóttunni. Það þarf því að koma í veg fyrir að það komist inn og verja sig á nóttunni.
- Þéttriðið flugnanet í glugga getur komið í veg fyrir að lúsmýið berist inn. Gott að vera í náttfötum og sokkum. Sokkarnir eru þá settir yfir buxnaskálmarnar og skyrtan ofan í buxnastrenginn. Best er ef ermarnar eru þröngar og liggja þétt aðhúðinni.
- Lúsmý þolir ekki vind, því gætu viftur í svefnherbergjum hjálpað.
- Skordýravörn sem sett er á húð og föt getur hjálpað. Vörn sem inniheldur 50% DEET (diethyltolua-mide) er áhrifaríkust. Fyrir börn má skordýravörn ekki innihalda meira en 10% af DEET.
Meðhöndlun á bitum eftir lúsmý. Allskonar húsráð eru í gangi varðandi meðhöndlun á bitum. Hafa skal í huga að sum efni geta valdið enn frekari ertingu í húðinni og því ekki til bóta. Ef þú færð slæmt bit:
- Kældu bólgið svæði í um 10 mínútur.
- Verkjalyf t.d. parasetamól slær á óþægindin og óhætt að nota skv.ráðleggingum á pakka.
- Hafðu hærra undir höndum og fótum ef bit eru þar, það getur dregið úr bólgumyndun.
- Ekki klóra í húðina þar sem það getur aukið líkur á sýkingum. Stutt kæling dregur úr kláða.
- Ofnæmistöflur fást án lyfseðils í apótekum. Þessi lyf hindra áhrif histamíns í líkamanum og geta minnkað kláða og útbrot.
- Sterakrem til dæmis. Mildison fæst án lyfseðils í apótekum. Kremið minnkar bólgur og kláða. Sterakrem ætti ávallt að bera á í þunnulagi og í stuttan tíma í einu. Forðast ætti að bera sterakrem í andlit eða á sár.
- Steratöflur, eingöngu ef umsvæsin útbrot er að ræða. Þá skal leita á næstu heilsugæslustöð og fá frekari ráðleggingar.
- Ef um alvarlegri einkenni er að ræða svo sem öndunarfæraerfiðleika, bólgu í hálsi, andliti eða munni, hraðan hjartslátt og meðvitundarskerðingu, getur það bent til bráðaofnæmis og þá skal leita strax á bráðamóttöku eða hringja í 112.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu.