Þetta hefur Morgunblaðið eftir þingmanni Pírata Birni Leví Gunnarssyni. Píratar styddu ekki öll mál skilyrðislaust. Þeir munu leggja mat á hvert mál fyrir sig. Þetta eru vissulega nokkur tíðindi.
Fyrrum varaformaður VG Björn Valur Gíslason skrifað um þetta á vef sínum www.bvg.is
Björn Valur telur að þátttaka í ríkisstjórn sé skuldbinding milli þeirra flokka sem mynda ríkisstjórnina. Ekki bara um þau mál sem stjórnarsáttmálinn kveður á um.
Heldur einnig önnur mál sem ríkisstjórnin þarf að takast á við á hverjum degi. Þetta þurfi allir að skilja segir Björn Valur.
Á hann augljóslega þarna ekki bara við Pírata heldur einnig félaga sína í VG.
Annars er betur heima setið en af stað farið skrifar Björn Valur.
Vera má að þessi orð þingmanns Pírata hafi þau áhrif á tilraunir VG sem VG síst vilja.