Í dag eru 30 ár liðin frá því bjór var leyfður aftur á Íslandi og af því tilefni hefur pönksveitin Fræbbblarnir bruggað sinn eigin bjór í samstarfi við Borg, en hann nefnist einfaldlega Bjór! eftir samnefndu lagi Fræbbblanna frá 1981.
Í laginu deila þeir hart á bjórbannið og hugsunina á bak við það, en í laginu segir meðal annars:
Það stendur í lögum
það stendur hér
að þeir eigi að hafa vit fyrir mér
þeir slefa út ræðum
þeir jarma í kór
þeir segja að ég verði slæmur af bjór
Er þetta ekki stór sigur fyrir hljómsveitina? „Jú, og vonandi fyrir fleiri en okkur,“ segir Valgarður Guðjónsson, söngvari Fræbbblanna, í samtali við Síðdegisútvarpið. „Það er mjög skrýtið að reyna að útskýra þetta umhverfi fyrir fólki, að það hafi mátt drekka sterkt vín, en ekki bjór. Þetta er bara eitthvað sem ekki nokkur maður skilur.“ En hvað drakk þá hljómsveitarfólk eins og þið baksviðs? Á þessum árum var það vodki í kók,
Nánar á