Þetta þarftu að vita um vegabréfið

Það er mikilvægt að vita hvernig og hvar maður á að nota vegabréfið sitt og hvenær tímabært er að endurnýja það, en ella geta menn orðið strandaglópar úti í heimi og gert þannig ævintýraferðina endasleppa.

Það verður boðið upp á kennslustund í notkun vegabrégfsins í sjónvarpsþættinum Ferðalaginu á Hringbraut í.kvöld, en þar verður tekið úr á borgaraþjónustu Utanríkisráðuneytisins þar sem daglega er leyst úr margvíslegum vanda íslenskra ferðalanga á erlendri grund.

Þátturinn er annars fjölbreyttur í meira lagi; rithöfundurinn Unnur Jökulsdottitr er tekinn tali um nýútkomna bók sína um undur Mývatns, heimahornaflakkarinn Finnbogi Rútur Arnarson fræðir áhorendur um nýlega ferð hans til Búrma, eða Myanmar eins og þetta fjarlæga land er líka kallað - og svo verður fjallað um deilur sem risið hafa innan stéttar langferðabílstjóra þar sem útlendum ökumönnum virðist vera boðin laun sem eru langt undir því sem almennt þekkist innan geirans hér á landi.

Ferðalagið byrjar klukkan 20:00 í kvöld.