Íslenska ríkið hefur borgað 1,1 milljarð króna fyrir bóluefnin við Covid-19. Þetta kemur fram í tölum frá heilbrigðisráðuneytinu sem birtar eru á vef Stundarinnar.
Mestu peningarnar hafa farið í kaup á bóluefnum Pfizer og AstraZeneca. Einn af hverjum fimm hafa fengið bóluefni frá Janssen en það mun vera tiltölulega ódýrt bóluefni. AstraZeneca er langódýrast þó, keyptir voru 112 þúsund skammtar fyrir 35 milljónir króna. Það þýðir að skammturinn kostar 370 krónur.
Enginn hefur verið rukkaður fyrir að fá bóluefni hér á landi, hefur það verið stefna stjórnvalda frá upphafi að ríkið standi straum af kostnaðinum við bóluefnin. Ríkið hefur fjárheimild upp á 1,4 milljarða til að kaupa bóluefnin.
Bóluefni Moderna, nú Spikevax er lang dýrast. Búið er að kaupa 38 þúsund skammta af því, þeir hafa kostað 514 milljónir króna. Gerir það um 13.500 krónur á skammtinn. Skammturinn af Pfizer kostar 2.150 krónur.