„Við höfum ekki ástæðu til að ætla að samdráttur í ferðamennsku verði eitthvað í líkingu við það sem samdrátturinn hjá WOW verður á næsta ári. Að þetta muni þýða færri sæti fyrir ferðamenn á leið til Íslands. Auðvitað getur það verið en það er ekkert sem segir að þannig verði það,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri um aðgerðir WOW air í dag.
111 fastráðnum starfsmönnum var sagt upp og samningar verða ekki endurnýjaðir við verktaka og tímabundna starfsmenn. Uppsagnirnar ná því til 350 starfsmanna fyrirtækisins. Þá verður flugvélum félagsins fækkað úr 20 í 11, en félagið er í samningaviðræðum um skil á öllum þeim breiðþotum sem hafa verið í notkun.
Nánar á
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/12/13/thetta_gaeti_verid_svo_miklu_verra/