Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi sendiherra og utanríkisráðherra, hefur stefnt Aldísi Schram dóttur sinni fyrir meiðyrði. Einnig hefur hann stefnt Ríkisútvarpinu og Sigmari Guðmundssyni, sem starfar sem fréttamaður þar. Stundin greindi fyrst frá.
Í stefnunum til Aldísar, Sigmars og RÚV eru talinn upp yfir tuttugu ummæli sem hún lét falla í þættinum ásamt fjórum ummælum Sigmars. Var Aldís í viðtali hjá Sigmari og Helga Seljan í Morgunútvarpi Rásar 2 þann 17 janúar síðastliðin. Jón Baldvin krefst 2,5 milljónir króna frá Sigmari en gerir enga fjárkröfu vegna ummæla Aldísar.
Samkvæmt stefnunni, sem Vísir hefur undir höndum, krefst hann þess að tíu ummæli Aldísar verði dæmd dauð og ómerk. Ummælin snúa að ásökunum um, ólögmæta frelsissviptingu, sifjaspell og barnaníð.
Hér að neðan má sjá ummæli Aldísar og Sigmars sem Jón Baldvin krefst að verði dæmd dauð og ómerk.
Ummæli Aldísar.
1. ... hann fær mig undir fölsku yfirskini að heimsækja afa minn ... mér var haldið inni þarna í mánuð sem sagt ólöglega.
2. ... já. Fimm sinnum á næstu 10 árum kastast í kekki milli mín og Jóns Baldvins Hannibalssonar og því lyktaði ávalt með því að (sic) sigaði á mig lögreglu sem handtók mig, hann er náttúrlega utanríkisráðherra ...
3. Hann gat bara þaðan í frá, þáverandi utanríkisráðherra og síðar sendiherra, virðist vera að hringja bara í lögreglu og þá var ég þar með handtekin, umsvifalaust í járnum, farið með mig upp á geðdeild ...
4. ... hann er þá líka að misnota lítil börn.
5. ... ég neita að skilja þau eftir í umsjón karls sem káfar á litlum stúlkubörnum.
6. Og sem sagt 10 mínútum eftir að ég kæri Jón Baldvin þá hringir dyrabjallan. Þar ruddust þarna inn tveir lögreglumenn ef ekki þrír og ég, þegar ég sé það þá reyni ég að loka en auðvitað tókst mér það ekki, þeir ryðjast þá þar með inn og þeir svara mér engu, ryðjast inn í stofu þar sem dóttir mín 5 ára gömul er að lesa og þegar barnið er tekið frá mér þá verð ég æf.
7. ... það er faðir minn sem stendur fyrir því að hér eigi að loka mig inni.
8. Fíkn, auðvitað er barnagirnd fíkn, þetta er fíkn.
9. ... nauðungarvistun án dóms og laga er þá ólögmæt frelsissvipting ...
10. ... og sigra hann og hans barnaníðingabandalag.
Ummæli Sigmars.
1. ... að Jón Baldvin hafi notað aðstöðu sína sem sendiherra til að láta nauðungarvista hana á geðdeild.
2. Sá fundur Aldísar og Jóns Baldvins segir hún hafa reynst sér örlagaríkur og orðið til þess að hún var í fyrsta sinn nauðungarvistuð á geðdeild.
3. ... að Jón Baldvin hafi sett sig í samband við félagsmálayfirvöld og geðdeild með það fyrir augum að fá hana nauðungarvistaða í enn eitt skiptið.
4. Þar segir hún einnig að Jón Baldvin hafi framið sifjaspell þegar hún var fullorðin kona.