Þetta eru ríkustu stjörnurnar í bandaríkjunum

Forbes-tímaritið hefur tekið saman lista yfir ríkustu stjörnur Bandaríkjanna. Hér er ekki átt við einstaklinga sem hafa orðið frægir eftir að hafa hagnast mikið á fyrirtækjum sínum, til dæmis Bill Gates hjá Microsoft eða Mark Zuckerberg hjá Facebook, heldur er um að ræða einstaklinga sem eru frægir í skemmtanabransanum.

Aðeins fjórir á listanum teljast milljarðamæringar í Bandaríkjunum, eiga eignir sem metnar eru á meira en einn milljarð dala. Það gæti komið einhverjum á óvart að George Lucas, leikstjóri og kvikmyndaframleiðandi sem er einna best þekktur fyrir Stjörnustríðsmyndirnar, er ríkastur.

Nánar á

http://pressan.dv.is/pressan/2018/12/20/thetta-eru-rikustu-stjornurnar-bandarikjunum-efsta-saetid-gaeti-komid-ovart/