Þetta eru kröfur varaforseta bandaríkjanna á grand hótel: tvær hæðir, hljóðeinangrun og starfsfólk skoðað ofan í kjölinn

Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna kemur hingað til lands á morgun um hádegisbil. Varaforsetinn mun hitta Guðna Th. Jóhannesson í Höfða á morgun klukkan tvö eftir hádegi. Þá mun Guðlaugur Þór Þórðarson einnig funda með varaforsetanum á morgun. Guðlaugur Þór sagði í kvöld að til stæði að ræða sérstaklega viðhald og endurnýjun á varnarmannvirkjum.

Gríðarlegar öryggisráðstafanir eru vegna komu Mike Pence. Þannig verður Sæbraut lokað í báðar áttir, ásamt fleiri stofngötum og þá er Borgartúni lokað í átta tíma. Nú þegar er búið að loka Höfða.

Búist er við hundruð starfsmanna varaforsetans og þá er leyniþjónustufólk með í för til að gæta varaforsetans á meðan hann dvelur hér á landi. Um sextíu bílar frá Hreyfli hafa verið teknar á leigu

Fleiri öryggisráðstafanir hafa verið gerðar. Mike Pence mun dvelja með fylgdarliði sínu á Grand hótel. Þar er sama upp á teningnum og ekkert til sparað þegar kemur að því til að tryggja öryggi varaforsetans. Samkvæmt heimildum Hringbrautar hafa tvær hæðir verið teknar á leigu, þá fjórðu og þá fjórtándu. Farið var fram á að önnur hæðin yrði alfarið hljóðeinangruð.

Ekkert af starfsfólki Grand hótel má fara um þessar hæðir. Þá var farið fram á það að starfsfólk myndi skrifa undir sérstaka samninga þess efnis að leyniþjónustan og eða lögreglan mætti gera umfangsmikla bakgrunnsathugun á starfsfólkinu og eftir að fortíð þess hefur verið skoðað og samþykkt mun það fá aðgang að hótelinu.