Þetta eru áhrifavaldar matthíasar og klemens - æskuvinir og systkinabörn

Heimildaþátturinn Hatari verður sýndur á föstudagskvöldið. Þar verður rætt við gjörningalistahópinn sem tekur þátt í Eurovision í Tel Aviv í kvöld. Þar verður saga hópsins skoðuð, hvernig Hatari varð til, heimspekina og áhrifavaldana.

Forsprakka Hatara, þeir Matthías Tryggvi Haraldsson og Klemens Nikulásson Hannigan eru systkinabörn. Hafa þeir verið nánir frá blautu barnsbeini. Matthías segir í heimildaþættinum:

„Klemens er miklu betri en ég í að spila á gítar þannig að ég hugsaði, ég get kannski einbeitt mér að því að skrifa texta. Þannig byrjaði Hatari.“

Þá segir Klemens:

„Þetta sprettur upp úr okkar dýnamík sem systkinabörn. Við erum æskuvinir sem höfum verið nánir síðan maður man eftir sér.“

Matthías bættir við:

„Og bætt hvor annan upp.“

Þá eru helstu áhrifavaldar þeirra eftirfarandi: Björk, Halldór Laxness, Sigurrós, Ragnar Kjartansson, Peaches og Eiríkur Örn Norðdahl, Justice. Race Agianst  og Rage Against the Machine.