Þetta er vikan sem við vorum rænd

Ef til vill er rithöfundurinn og Hringbrautarpenninn Guðmundur S. Brynjólfsson af Eyrarbakka ekki eini Íslendingurinn sem er ruglaður eftir þessa sjöttu viku ársins, en púslin sem safnast hafa upp í huga hans passa ekki endilega saman.

Þetta byrjar svona hjá Guðmundi í hans nýjasta pistli, þó í spurnartóni: \"Jón Þór pírati fékk ekki pizzusneið á Alþingi og gjörðist stöðumælavörður og því kallaði Árni Páll herinn aftur til baka? Eða ... Pizzusneið Samfylkingarinnar hrökk ofan í hana á miðju síðasta kjörtímabili og því fór sem fór?\"

Hann er samt efins um þessa viku: \"Herinn sá að Jón Þór pírati var kominn í úniform og varð hræddur og ákvað að koma aftur? Eða ... Ragnheiður Elín sá að Baldur Guðlaugsson átti ekki fyrir pizzusneið og ákvað því að redda honum einhverju að gera – hann gat ekki hugsað sér að verða stöðumælavörður?\"

Enn er Guðmundur hugsi um síðusu og verstu daga: \"Steinþór Pálsson sem gaf Borgun í þeirri von að fá pizzusneið óttast að herinn eigi að ýta honum út úr bankanum og inn í Samfylkinguna? Eða ... Ragnheiður Elín drakk mengað vatn úr terpentínuflösku* á Hótel AdaM og fékk óráð og sýndist Baldur Guðlaugsson vera í lagi og Árni Páll vera í stöðumælavörslu með pizzusneið?\"

Hann nálgast þó niðurstöðuna: \"Borgun fyrir pizzusneið kemur ekki til greina – en Borgun fyrir ekki neitt er í lagi?\"

Og veit enn ekki betur en vikan hafi verið svona, hafi þetta verið vika: \"Eins og glöggir menn sjá og óglöggir líka er eitthvað örlítið að; Bílastæðasjóður hefur náð sér í sjóræningja, Ragnheiður Elín hefur náð sér í ræningja, túristar hafa kynnst íslenskum ræningja, þjóðin á von á alræmdum landræningjum, Landsbankinn er rændur um miðjan dag, valdaránið í Samfylkingunni stendur yfir.\"