„Hví í ósköpunum var ekki gerð nein úttekt?“, spyr Sævar Þór Jónsson, lögmaður vegna sjálfsvíga sem hafa verið framin á geðdeild Landsspítalans og bendir á að í fyrra skiptið af tveimur nýlegum hefði átt að loka deildinni og gera óháða úttekt.
Sævar var gestur Lindu Blöndal á Þjóðbraut. Hann hefur tekið að sér mörg mál fyrir geðsjúka og fólk með fíknisjúkdóma sem og aðstandendur þeirra. Mál eins og lögræðissvipting hefur við á hans borði. Eins hefur Sævar persónulega reynslu af geðheilbrigðiskerfinu þar sem barnsmóðir hans svipti sig lífi.
Hann gagnrýnir harðlega aðstæður fólks eins og skjólstæðinga sinna innan heilbrigðiskerfisins. Sævar bendir á að aðstandendur eigi að geta verið vissir um að þeirra nánustu séu öruggir á sjúkrastofnunum en þannig sé það ekki.
„Við heyrum um það til dæmis þegar að það verða bílslys á einhverjum vegaköflum eða ítrekuð slys á einhverjum vinnustað eða hvaðeina, þá er gert eitthvað, það fera af stað eitthvað í kerfinu. Það er þá annað hvort að vinnustaðnum er lokað eða eitthvað slíkt til þess að ganga úr skugga um að það sé öruggt að vera á þessum tiltekna stað“, segir Sævar og bendir á að gagnrýni á geðheilbrigðiskerfið sé gömul og aðgengi að hjálp léleg. BUGL hafi til að mynda lokað hluta úr sumrinu vegna sumarleyfa starfsfólks.