\"Framsókn er byrjuð að undirbúa kosningar af kappi. Hún leggur sig fram við að skapa skörp skil á milli sín og Sjálfstæðisflokksins í stórmálum,\" skrifar sá skylmingarglaði pólitíkus sem Össur Skarphéðinsson er.
Hann gónir inn í hina pólitísku kristalskúlu í nýjustu fésbókarfærslu sinni - og sjá: \"Frosti er sendur út á völlinn til að ráðast gegn stefnu Sjálfstæðismanna um að selja stóran hlut úr Landsbankanum. Viðbrögð Sigmundar benda eindregið til að Frosti sé ekki í einleik – heldur sé þeirri kanónu miðað úr Stjórnarráðinu.\"
Þar höfum við það - og meira til: \"Framundan eru svo hörð átök um söguna endalausu - hin ofurseinu húsnæðisfrumvöp Eyglóar. Þar ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að móast gegn eins lengi og móast verður. Þessi mál gætu orðið ríkisstjórninni mjög erfið á lokaspretti kjörtímabilsins, \"skrifar Össur enn og kveðst taka eftir því að Sigmundur sé byrjaður að stilla upp mönnum sem eiga að stjórna kosningabaráttu hans: \"Í lítilli frétt var Matthías Imsland, áður aðstoðarmaður Eyglóar, kynntur sem nýr aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs. Það er fáheyrt að ráðherrar „nappi“ þannig aðstoðarmönnum hver frá öðrum, en er mjög sterkur leikur hjá Sigmundi. Matthías er einn af sterkustu taktísku hugsuðum Framsóknar. Hann var maðurinn á bak við kosningasigur Eyglóar í prófkjöri Framsóknar í Kraganum, var tengill hennar við ASÍ þar sem hún á sterkasta bakhjarl sinn í húsnæðismálunum, og Imsland hefur af dæmafárri snilld haldið henni á lífi þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi til þessa stoppað öll helstu mál hennar í þinginu. Það má búast við breyttum útspilum frá Sigmundi, sbr. tillöguna um þjóðaratkvæði um verðtrygginguna, og kannski öðru vísi stíl. Hvort Matthíasi tekst að gera Sigmund Davíð að landsföður á eftir að koma í ljós, en mér segir svo hugur að sparihanskarnir verði dregnir af höndum Framsóknar í viðureigninni við samstarfsflokkinn.\"
Össuri er nánast skemmt: \"Það stefnir því allt í litríka kosningabaráttu þegar líður á árið, bæði milli stjórnar og stjórnarandstöðu, en ekki síður milli stjórnarflokkanna,\" og hann sér djúpt í kúluna: \"Eina málið sem gæti hugsanlega orðið samstarfinu að fjörtjóni eru húsnæðismálin – en varla þó. Búum okkur samt undir langvarandi störukeppni Sigmundar Davíðs og Bjarna um þau og Landsbankann.\"