„Þetta er þjóðarmorð og alltof lítið fjallað um þetta. Ég var orðlaus þegar ég heyrði vitnaleiðslur Kúrda í Parísardómstólnum og hét því þá að fá einhverja af þeim sem báru vitni til að koma til Íslands og færa okkur reynslu sína“, segir Ögmundur Jónasson fyrrverandi ráðherra.
Ögmundur er gestur Sigmundar Ernis í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut í kvöld og ræðir þar Kúrda og ofsóknir í garð þeirra.
Húsfyllir var í Safnahúsinu í Reykjavík á laugardaginn þegar viðburðurinn „Kúrdarnir koma“ fór fram. Þar hafði Ögmundur komið því í kring að tveir Kúrdar héldu tölu og lýstu hræðilegum upplifunum og sýndu voðalegar myndir.
Ofsóknir af hendi Erdogan
Kúrdistan er 50 milljóna þjóð sem er aðþrengd af Tyrkjum, Sýrlendingum, Írönum og Írökum og mega helst hvergi vera á þeim slóðum þar sem þeir búa í fjöllunum á landamærum þessara ríkja. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, fer fremstur í flokki í tilraunum til að þurrka þjóðina út, þar sem hann lætur m.a. brenna börn og gamalmenni.
„Tyrkir eru að reyna að þurrka út kúrdíska menningu. Ég sótti fund í Diyarbakir, höfuðborg Kúrda í suðaustur Tyrklandi í mars 2014. Þá var hafið þíðuskeið milli stjórnvalda í Ankara og Kúrda. Hernaður lagðist niður og Kúrdar lögðu á þessum stórfundi sem ég sótti höfuðáherslu á friðsamlegar lausnir. Þessi afstaða færði þeim sigur í þingkosningum vorið 2015, þar sem HDP flokkur Kúrda hlaut yfir 80 þingmenn. Við þetta missir Erdogan meirihluta sinn á þingi og ærist. Eftir það er þessu þíðuskeiði lokið og þá hefjast þessar ofsóknir fyrir alvöru“, segir Ögmundur.
Nánar er rætt við Ögmund í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut kl. 21:00 í kvöld.