\"I agree“ er stærsta lygin í samfélagi nútímans,\" að því er Píratinn Helgi Hrafn Gunnarssonar hélt fram á málþingi Persónuverndar á fimmtudag. Þar vísaði hann til skilmála sem notendur tölvutækninnar þurfa oft og tíðum að samþykkja til að njóta ýmissar þjónustu.
Helgi fór mikinn í máli sínu: \"Þó að um sé að ræða upplýst samþykki, og þó að notandinn hafi að vissu leyti val, þá stendur valið í auknum mæli á milli þess að veita persónuupplýsingar eða vera hreinlega ekki með. Persónuupplýsingar eru einfaldlega orðnar svo nauðsynlegar til að taka þátt í öllum hlutum nú til dags, hvort sem það er Facebook, örorkubætur eða hvaðeina. Það er bara þessi yfirþyrmandi krafa í samfélaginu um persónuupplýsingar, hvert sem þú lítur,“ sagði þingmaðurinn á málþinginu.
Hann bætti því við að aldrei fyrr hefði verið mikilvægara að huga að málaflokki persónuverndar. Því valdi upplýsingabyltingin. Í umræðunni gleymdist gjarnan einn þáttur í jöfnunni að mati Helga: \"Það er almenningur. Þar vandast málið, kannski sem betur fer, því enginn hefur jú stjórn á almenningi. En rót vandans er að persónuupplýsingar eru óheyrilega gagnlegar fyrir í raun alla, fyrirtæki, stofnanir, stjórnmálasamtök og einstaklinga.“