Þetta er okkar neyðarkall til þín!

Dagana 31. október til 3. nóvember standa björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar fyrir landssöfnuninni „Neyðarkall björgunarsveitanna“.

Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveita enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu. Nú treysta björgunarsveitirnar á fólkið í landinu, björgunarsveitafólk mun standa vaktina á fjölförnum stöðum þessa daga og selja Neyðarkall.

\"\"

Neyðarkallinn árið 2019

Hagnaður af sölunni rennur beint til björgunarsveita og verður hann notaður til að efla búnað og styrkja þjálfun björgunarsveitarmanna landsins. Vonast björgunarsveitin til þess að landsmenn taki meðlimum björgunarsveitanna opnum örmum og styðji þannig við bakið á fórnfúsu starfi þeirra þúsunda björgunarsveitarmanna sem eru til taks allan ársins hring þegar samborgarar þeirra þurfa á aðstoð að halda.