Greint var frá því fyrr á árinu að bandaríski herinn og NATO ætla að verja tæpum 14 milljörðum króna til uppbyggingar og viðhalds á varnarmannvirkjum hér á landi á næstu árum. Kostnaðarþátttaka Íslands er um 400 milljónir króna. Í Silfrinu í dag var rætt um komuMike Pence, varaforseta Bandaríkjanna. Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins sagði að ráðamenn þar í landi væru ekki að sækja landið heim nema þeir ættu hingað erindi, ekki væri um kurteisisheimsókn að ræða. Þá væri áhugi þeirra á Norðurslóðum kviknaður á nýjan leik. Einnig benti Styrmir á að Bandaríkjamenn gætu ekki komið aftur nema að íslensk stjórnvöld myndu samþykkja slíkt.
Atli Þór Fanndal, blaðamaður, fjallaði um umræðurnar í Silfrinu í dag á Facebook. Þar sagði Atli að svo virtist sem gestir Egils, fyrir utan Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmann Pírata, hefðu ekki nokkra hugmynd um hvað Bandaríkjamenn væri að vilja til Íslands. Segir Atli að gestirnir hafi verið illa undirbúnir. Atli segir:
„Það er eins og enginn í paneli þessa miklu snillinga hafi heyrt um utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna og þeirrar staðreyndar að þar má finna það sem kallast „Integrated Country Strategy“ fyrir hvert einasta land sem Bandaríkin eru með \mission\' gagnvart. Hvað ætli standi þar um Ísland?“
Atli bætir við:
„Það þarf ekki heilan panel fyrir fólk sem nennir ekki að undirbúa sig fyrir viðtöl þar sem þau eiga að vera einhverskonar álitsgjafar með meira fram að færa en áhorfendur. Ég ætla að leyfa mér að taka aðeins upp hanskann fyrir starfsfólki utanríkisráðuneytisins sem álitsgjafarnir (að utan þingmanni Pírata) leyfðu sér að lýsa ítrekað yfir að vissu bara ekkert um Bandaríkin.“
Atli birtir síðan tengil þar sem finna má helstu upplýsingar um hvaða kosti Bandarísk stjórnvöld sjá við Ísland