Fjölmargir hafa fundið fyrir öflugum jarðskjálftum á suðvesturhorni landsins síðasta sólarhringinn. Var sá stærsti af stærð 5,0 við Fagradalsfjall á Reykjanesi klukkan 23:36 í gærkvöldi og fannst hann víða á Suður- og Vesturlandi.
Margir eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið sem fundust einnig víða, þeir stærstu 4,6 af stærð klukkan 05:46 og 4,3 af stærð klukkan 06:23 í morgun.
Þá hefur jarðskjálftahrina lengi staðið yfir við mynni Eyjafjarðar og í nálægð við Grindavík.
Fréttablaðið hafði eftir náttúruvásérfræðingi hjá Veðurstofunni í morgun að búast megi við fjölda eftirskjálfta þegar um svo stóra skjálfta er að ræða.
Flestum bregður mikið þegar þeir finna fyrir skjálfta og taka sumir á því að hlaupa út á götu. Slíkt er þó ekki ráðlagt samkvæmt leiðbeiningum almannavarna þar sem hætta er á því að fólk hrasi í hamaganginum og slasi sig.
Hér fylgja ítarlegar leiðbeiningar almannavarna um það hvernig skal haga sér þegar jörðin byrjar skyndilega að skjálfa.
Ef þú ert innandyra þegar þegar jarðskjálfti byrjar– ekki hlaupa af stað.
- Haltu kyrru fyrir, mörg slys verða þegar hlaupið er af stað
- Farðu undir borð eða rúm og haltu þér í borð- eða rúmfót
- Krjúptu niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg
- Verðu höfuð þitt og andlit með kodda- ef þú vaknar upp við jarðskjálfta
- Haltu þig frá gluggum – þeir geta brotnað
- Láttu vita af þér með SMS þegar jarðskjálftinn hættir
Ef þú er utandyra þegar þú finnur jarðskjálfta – ekki hlaupa inn
- Vertu áfram úti
- Ekki vera nálægt háum byggingum sem geta hrunið eða háum trjám
- Grjóthrun, skriður og snjóflóð geta fallið úr hlíðum og fjalllendi
- Raflínur geta verið hættulegar – varist að snerta þær
- Reyndu að komast á opið svæði þar sem byggingar þrengja ekki að
Ef þú ert að keyra bíl þegar þú finnur jarðskjálfta:
- Hafðu sætisbeltin spennt
- Legðu bílnum og stoppaðu. Vegir og brýr geta skemmst í jarðskjálfta
- Haltu kyrru fyrir í bílnum þar sem hann getur varið þig gegn brotum og braki sem fer af stað í jarðskjálfta – hlustaðu á útvarpið, þar koma jafnan fyrstu upplýsingarnar um jarðskjálftann.