Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segir að árið 2020 hafi verið krefjandi. Hún birti stutta færslu á Facebook ásamt mynd af sér og fjölskyldu sinni, eiginmanni og þremur sonum.
„Þetta ár var svo sannarlega krefjandi fyrir okkur öll. Á slíkum tímum skiptir máli að eiga góða að og það á ég svo sannarlega í þessum fjórum drengjum. Kristinn Ingvarsson tók þessa mynd af okkur í haust við grásleppuskúrana á Ægisíðu en hana höfum við gengið ótal oft á árinu."
Hún þakkar öllum fyrir stuðninginn á árinu og segir að bjartari tímar séu framundan.
Hún sendir einnig kveðju á Twitter en þar segist hún vera stolt af samfélaginu okkar.
„Flest kveðjum við 2020 í þeirri von að nýtt ár verði okkur bjartara og betra. Ég er ótrúlega stolt af samfélaginu okkar sem hefur sýnt samheldni, þrautsegju og hugrekki á árinu sem senn líður undir lok. Gleðilega hátíð kæru landsmenn og förum öll varlega í kvöld!"