Sæbraut verður lokað í báðar áttir á einhverjum tímapunkti á morgun vegna komu Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna. Pence tekur þátt í málþingi á Höfða á morgun.
Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir í samtali við RÚV að einhverjum götum verði lokað strax í fyrramálið og muni aukast þegar líður á daginn. Aðgerðum ætti að vera lokið síðdegis á morgun.
Vegfarendur mega eiga von á því að götum verði lokað þegar varaforsetinn er á ferðinni.