Samstarfi er lokið

Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar segir að Viðreisn þurfi að fara yfir málin og vega þau og meta. Þá bætir hann því við að Viðreisn færi vel stemmd inn í kosningarnar. Þetta segir hann þó að skoðanakannananir sýni lítið fylgi við Viðreisn.

Heimildir Hrbr innan Viðreisnar segja að framtíð Viðreisnar sé óljós og telja sömu heimildir að ekki sé ráðlegt að bjóða fram í öllum kjördæmum og hæpið sé að Bendikt Jóhannesson leiði flokkinn mikið lengur.

Ályktun ráðgjafaráðs Viðreisnar frá því í gær sýni helst alvarlega stöðu innan Viðreisnar segja heimildir Hrbr. Vinnubrögð Bendikts segja sömu heimildir undanfarna mánuði standast tæpast þær kröfur sem Viðreisn á að gera um vandaða starfshætti formannsins.

[email protected]