Þessir níu þingmenn keyrðu mest á árinu: ásmundur ók fyrir 3,5 milljónir

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur fengið 3,5 milljónir frá skattgreiðendum síðustu tíu mánuði ársins vegna aksturs. Hefur Ásmundur fengið 2,8 milljónir vegna aksturs á bílaleigubíl og þá hefur hann fengið tæplega 630 þúsund vegna eldsneytiskostnaðar. Kjarninn greinir frá og vitnar í vef Alþingis.

Akstur Ásmundar

Ásmundur ók fyrir tæpar 3,2 milljónir árið 2013.

Mest keyrði hann árið 2014 og þá fékk hann um 5,4 milljónir frá Alþingi vegna nota á eigin bifreið.

Árið 2015 fékk hann örlítið minna eða um fimm milljónir.

Árið 2016 fékk hann tæpar 4,9 milljónir.

Árið 2017 hlaut hann 4,2 milljónir fyrir aksturinn og alls 4,6 milljónir vegna ferðalaga innanlands.

Árið 2018 notaði Ásmundur bílaleigubíl og fékk 1.166.050. Þá fékk hann 684.090 fyrir að nota eigin bíl og 633.073 krónur fóru í eldsneyti sem hann fær einnig endurgreitt.

Á árinu 2018 fékk Ásmundur einnig 536.160 í húsnæðis og dvalarkostnað en Ásmundur er búsettur í Njarðvík. Þá fékk Ásmundur 360 þúsund í fastan ferðakostnað í kjördæminu líkt og aðrir landsbyggðarþingmenn.

Alls er kostnaður við ferðalög Ásmundar innanlands tæplega 2,5 milljónir króna fyrir árið 2018.

Rukkaði fyrir að skutla starfsfólki ÍNN

DV greindi frá því að Ásmundur hefði endurgreitt Alþingi 178 þúsund krónur vegna aksturs síns frá árinu 2017 með tökufólki frá sjónvarpsstöðinni ÍNN. Þótti honum það orka tvímælis að blanda saman ferðum sínum um kjördæmið með tökufólkinu, en í lok Kastljósþáttar í byrjun árs heyrðist Ásmundur viðurkenna að hann hefði rukkað Alþingi fyrir þann akstur, þó svo ljóst væri að sú ferð væri ekki hluti af starfi hans sem þingmaður.

Níu þingmenn sem keyra mest:

  • Ásmundur Friðriksson 3,5 milljónir króna
  • Vilhjálmur Árnason 2,3 milljónir króna
  • Birgir Þórarinsson 1,6 milljónir króna
  • Guðjón S. Brjánsson 1,5 milljónir króna
  • Sigurður Páll Jónsson 1,5 milljónir króna
  • Haraldur Benediktsson 1,5 milljónir króna
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir 1,4 milljónir króna
  • Lilja Rafney Magnúsdóttir 1,2 milljónir króna
  • Líneik Anna Sævarsdóttir 1,0 milljónir króna