Þessi umræða er þvættingur

Björt Ólafsdóttir, Bjartri framtíð, og Bjarni Benediktsson tókust á Alþingi. Björt spurði um muninn á vöxtum hér og í öðrum löndum.  „Sér hann ekki fyrir sér að Íslandi geti verið þannig land eins og löndin í kringum okkur að hér bjóðist tvö prósent óverðtryggðir húsnæðisvextir? Hefur hann ekki trú á því að Ísland komist einhvern tímann í það ástand að fjármálastofnanir í stöðugu umhverfi muni keppast við að lána fólki á þeim vöxtum? Stjórnmálamaður sem hefur ekki þá sýn, hefur ekki trú á að þetta sé hægt er fastur í plástrum og ómarkvissum aðgerðum til þess að gera lífið bærilegt fyrir fólkið.“

Svar Bjarna var um margt merkilegt. Til dæmis þetta: „Ég verð að segja að á þessu kjörtímabili hef ég þurft að standa vörð um stefnu stjórnvalda varðandi niðurstöðu í kjarasamningum og menn hafa lamið á fjármálaráðherranum fyrir það að ganga ekki samstundis að kröfum um fimmtíu prósent launahækkanir úti um allt samfélag. Það er sama hver átti í hlut.“

Björt var ekki ánægð með ráðherrann og sagði endalaus ríkisafskipti af markaðnum vera það sem Bjarni stendur fyrir og það mun leiða til hækkandi húsnæðisverðs. „...og það mun ekki gera ungu fólki kleift eða gera þeim auðvelt að koma sér á húsnæðismarkað. Það er bara þannig.“

„Þessi leikur að reyna að benda á það sé þessi maður sem ber ábyrgð á verðtryggingunni og það sé þessi þarna sem ber ábyrgð á háum vöxtum, þetta er bara þvættingur allt saman. Þessi umræða er þvættingur. Við Íslendingar verðum að horfast í augu við það að hér gilda sömu lögmál og annars staðar. Ef menn vilja hér í þinginu hafa uppi kröfur um stóraukin ríkisútgjöld á hverju ári og ef launþegahreyfingin vill stórauka laun á hverju þá verður afleiðingin sú sem var verið að lýsa.“