Ég vil meina að hann hafi haft kjark til að taka þessa óhefðbundnu leið,“ sagði Auður Axelsdóttir, forstöðukona Hugarafls, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hugarafl starfaði áður í samstarfi við sex manna fagteymi á vegum heilsugæslunnar, en það hefur verið lagt niður og því útséð að starfsemi Hugarafls skerðist af þeim sökum. Auður þakkar Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra, persónulega fyrir að Hugarafl lifi áfram en aftur á móti vandar hún Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra ekki kveðjurnar.
„Þegar Ásmundur var að semja við okkur og undirskriftir fóru fram í nóvember, sagði hann okkur að fjöldinn allur af fólki hefði haft samband við hann til að greina honum frá bata sínum í Hugarafli og hjá GET teyminu, og það var það sem skipti hann máli, það sem fullvissaði hann um að þessi stærð yrði að vera til.“, segir Auður, þakklát Ásmundi fyrir inngripið.
Nánar á