Þessvegna geta börnin mín ekki flutt út!

\"Ef við hjónin hefðum árið 1991 farið í tímavél og þotið fram um tæpan aldarfjórðung þá hefði niðurstaðan á þessum einfalda samanburði á fyrstu íbúðarkaupum tveggja kynslóða verið sú að við hefðum ekki getað keypt okkar fyrstu íbúð í dag með sama hætti og okkur reyndist þokkalega auðvelt þá?\"

Þannig endar Margrét Kristmannsdóttir kaupmaður nýjan pistil sinn á hringbraut.is, en þar fjallar hún um muninn á fyrstu íbúðarkaupum hennar og eiginmanns síns fyrir nálega aldarfjórðungi og raunveruleikanum sem blasir við börnum þeirra í dag, en þau eru nú á þrítugsaldri og búa enn í foreldrahúsum, raunar nýju húsi sem rúmi allan mannskapinn alveg ágætlega, enda öll svefnherbergin ekki lengur öll hlið við hlið sem þyki \"einhverra hluta vegna ekki lengur eftirsóknarvert.\"

Margrét segist hafa verið að róta í gömlum möppum sem innihéldu skattaskýrslur þeirra hjóna frá árum áður og þar með farið að velta fyrir sér ólíku hlutskipti íbúðarkaupenda árið 1991 og nú í dag. Vissulega vilji hún hafa börnin sín ennþá heima hjá sér og sjálf sé hún reyndar þeirrar skoðunar að með nokkurri aðlögun geti tengdabörn og fyrstu barnabörnin \"hæglega unað í sátt og samlyndi í þessu nýja húsi næsta áratuginn eða svo. Gallinn er að unga fólkið á heimilinu deilir ekki þessari framtíðarsýn með mér,\" skrifar Margrét og byrjar svo að reikna.

\"Fyrstu íbúðarkaup okkar hjóna árið 1991 var 75 fm. íbúð sem kostaði 5,6 milljónir með útborgun upp á rúma milljón.   Á sama ári voru brúttótekjur okkar hjóna 4,1 milljón.   Útborgunin var ekki mjög mikið mál - við þrepuðum okkur niður í ódýrari bíl og höfðum náð að leggja fyrir af laununum okkar enda húsaleiga óveruleg frá heimkomu!   Íbúðarverðið var 35% hærri en árstekjur.\"

Hún kemst að þeirri niðurstöðu að staðan í dag sé allt önnur, sama íbúð árið 2015 myndi kosta 31 milljón með útborgun upp á rúmar sex milljónir króna, en heildarárslaun ungu hjónanna hefur ekki hækkað nema í 15,8 milljónir: \"Og hér liggur hundurinn grafinn. Íbúðarverðið er ekki lengur 35% hærri en árslaun heldur næstum helmingi hærri - næstum 100%. Og þó að þetta sé án efa óvísindaleg og einföld framsetning kristallast staða unga fólksins engu að síður í því að á undanförnum aldarfjórðungi hefur orðið algjör viðskilnaður á milli þróunar íbúðarverðs og launa.\"   

Pistil Margrétar má lesa í heild sinni hér á forsíðunni á hringbraut.is.