\"Ég held að fólk sé ekki alveg að fatta það að með þessari aðferð er sá sem flytur milljarð í skattaskjól að skjóta 360 milljónum undan skatti,\" segir fyrrum þingmaður, Sigurjón Þórðarson.
Aðferðin sem hann nefnir svo felst í því að fyrirtæki borga 20% skatt af hagnaði og síðan þarf að greiða 20% af því sem eftir er í fjármagnstekjuskatt. Síðan megi nýta tapið af skúffufyrirtækinu í frekari afskriftir á hagnaði þegar búið sé að tæma alla peninga þess endanlega eða leggja það niður í kjölfar þess að það tapaði öllu sínu.
Sigurjón segir í pistli um skattaskjólin á Eyjunni að ekkert sé eðlilegt við að æðstu ráðamenn þjóðarinnar séu með félög í skattaskjólum. Tilgangurinn sé að fela slóð peninga og komast hjá upplýsingaskyldu skattyfirvalda. Hvatinn að flutningi fjár í skattaskjól sé að spara skatta. Sem fyrr segir hefur hann reiknað út að af einum milljarði íslenskra króna sem dylja megi í skjóli frá íslenska ríkinu kunni að tapast 360 milljónir úr almannasjóðum.
Nokkrar ástæður séu fyrir því að menn leggi á sig langa leið með stofnun fyrirtækja í skattaskjólum en aðallega varði þær skattaundanskot eða tilbúinn kostnað til að minnka hagnað og þar með skattagreiðslur inn í íslenska almannasjóði.